Það vakti nokkra kátínu á borgarstjórnarfundi í dag þegar ræða mín um frístundir barna fór að snúast um hringtorg. Eðlilega – ég geri mér grein fyrir að langt er seilst – en þó er nauðsynlegt að skoða stóru myndina og ræða það hvar og hvenær sjónarmið og hagsmunir barna eru tekin inn í pólítíska umræðu og ákvarðanatöku.

Frístundir barna eru með mjög ólíku sniði í hverfum borgarinnar. Sum börn geta gengið allra sinna ferða á meðan önnur börn þurfa á mun flóknari samgönguháttum að halda - oft þannig að almenningssamgöngur duga ekki til. Borgaryfirvöld hafa á undanförnum misserum brugðist við með sérstökum aukafjárveitingum í þágu almenningssamgangna fyrir börn, með frístundastrætóum og félagarútum. Að sama skapi hafa endurbætur og lagfæringar á gönguleiðum verið framkvæmdar og hávær krafa er uppi um frekara átak í þeim efnum.

Á fundinum talaði ég alls ekki gegn því að farið yrði í þessar lagfæringar – hvorki á almenningssamgöngukerfinu né á gönguleiðum. Ég benti þó á að þessi vinnubrögð yrðu að heyra sögunni til, það má ekki vera þannig að börn og þeirra hagsmunir gleymist eða verði útundan við skipulagningu og útfærslu á borginni og þjónustu hennar. Það er ekki boðlegt að fyrst sé ákvörðunin tekin og svo sé farið  eftirá í lagfæringar og endurbætur til að koma til móts við börnin.

Þá komum við að hringtorgunum. Ég er fullorðin kona og hef haft bílpróf í næstum tuttugu ár. Ennþá þarf ég þó að einbeita mér í akstri um hringtorg – og ekki síður þegar ég er fótgangandi nærri slíkum mannvirkjum. Hvernig í ósköpunum á að útskýra fyrir grunnskólabörnum hvað beri að varast þegar gengið er yfir að- og útkeyrslur á hringtorgum? -Hvenær eru bílarnir að stoppa fyrir öðrum bílum og hvenær eru þeir að stoppa fyrir þeim sem eru fótgangandi?

Hringtorg eru gerð til þess að greiða fyrir bílaumferð á gatnamótum og virka ágætlega sem slík. Þau eru afleit fyrir gangandi og hjólandi og um þau gilda reglur sem eru allt of flóknar til að hagsmunir barna hafi verið hafðir að leiðarljósi við hönnun þeirra.

Borgaryfirvöldum ber að hafa hagsmuni allra borgarbúa að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku, sama hvort það er á vettvangi leikskóla, frístunda, skipulags eða samgöngumannvirkja – því jafnvel þótt tengslin séu oft vandséð, þá eru þau til staðar í öllum tilfellum.

Ekki er tekið við athugasemdum.