Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar undanfarinn sólarhring um framkvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík vil ég koma mínum sjónarmiðum á framfæri. Það er í raun ekki margt sem ég hef við úrskurð kjörstjórnar að bæta eða yfirlýsingu sem síðar var send út. Þar kemur fram að forvalið fór fram í samræmi við settar reglur og með sama sniði og árin 2007 og 2009 og öll tvímæli tekin af um kosningasvindl.
Þá er brýnt að upplýsa að af þeim tæplega 300 sem hringt var í heiman frá mér á kjördag voru 15 einstaklingar sem ekki áttu heimangengt og nýttu sér þá leið að fá til sín kjörseðil og láta skila honum til baka. Alls voru póstatkvæðin 84.
Þær ávirðingar sem bornar hafa verið á mig og stuðningsfólk mitt í fjölmiðlum eru alvarlegar, en að baki þeim eru eingöngu sögusagnir sem farið hafa manna á milli í tilfinningaþrungnu andrúmslofti á kjördegi. Á dögum sem þessum spretta upp alls kyns sögur, en ég sé enga ástæðu til að elta ólar við slíkt, enda ógerningur og ekki til þess fallið að styrkja stöðu framboðsins í heild sinni.
Forvalsreglurnar eru alls ekki yfir gagnrýni hafnar – og sjálfsagt að þær verði endurskoðaðar fyrir næsta forval af þar til gerðum stofnunum innan flokksins.
Fyrst og fremst vonast ég til þess, nú þegar ljóst er að ekki hefur verið farið á svig við forvalsreglurnar og niðurstöðum forvalsins verður ekki breytt, að við frambjóðendur leggjum fortíðina að baki, stillum saman strengi og horfum fram á veginn.
Færslur (RSS)
Til hamingju með fyrsta sætið Sóley.