Þá er forvali Vinstri grænna í Reykjavík lokið. Þar kom berlega í ljós að Vinstri græn hafa mikinn hug á að vinna sveitarstjórnarkosningarnar í vor, enda var þátttakan afar góð. Ég er glöð og þakklát með það traust sem félagar mínir sýndu mér og staðráðin í að standa undir því á komandi kjörtímabili. Að sama skapi er ég afskaplega ánægð með þann hóp fólks sem valinn var til verka og sannfærð um að hann mun vinna frábært starf á næstu fjórum árum.

Við Þorleifur höfum unnið þétt og vel saman á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka, þó við höfum bæði gegnt mörgum ólíkum hlutverkum. Þorleifur er mikill baráttumaður fyrir hag og velferð borgarbúa og hefur unnið ötullega á vettvangi borgarstjórnar. Ég veit að við munum áfram eiga gott og kraftmikið samstarf.

Í þriðja sæti er Líf Magneudóttir sem er ný á lista. Þar er kraftmikil kona á ferð sem á án efa eftir að koma með ferska vinda inn í borgarmálin. Þar á eftir er Elín Sigurðardóttir sem hefur starfað af krafti með borgarstjórnarhópi VG á kjörtímabilinu. Úrvalskona sem stendur svo sannarlega fyrir sínu. Davíð Stefánsson, formaður Vinstri grænna í Reykjavík vermir fimmta sætið. Hann hefur verið virkur í flokknum frá byltingu, er sannur hugsjónamaður sem mun gera góða hluti. Í sjötta sæti er svo Hermann Valsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna. Hann hefur látið að sér kveða á kjörtímabilinu, sér í lagi í þágu barnanna í borginni, heilsu þeirra og virkni og staðið vaktina í íþróttamálum af krafti enda íþróttakennari að mennt.

Öll erum við sem skipum efstu sætin á lista Vinstri grænna í pólítík vegna þess að við trúum því að Vinstri grænar áherslur séu best til þess fallnar að leiða borgina í gegnum þá erfiðu tíma sem framundan eru. Á næstunni munum við leggja línurnar fyrir kosningabaráttuna, þar sem við byggjum á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin af forverum okkar í borgarstjórn Reykjavíkur en leitum einnig nýrra leiða til að tryggja velferð borgarbúa og að sjónarmið um félagslegt réttlæti, umhverfisvernd og kvenfrelsi verði höfð að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku af hálfu borgaryfirvalda.

Ekki er tekið við athugasemdum.