Ég hef svo sem ekki farið varhluta af þeim áhrifum sem hægt er að hafa með þátttöku í sveitarstjórnum, en gerði mér ekki grein fyrir því hversu lengi þau vara fyrr en fyrir stuttu. Áhrifa Árna Þórs Sigurðssonar gætir enn í Reykjavík, enda var hjólreiðaáætlun sem hann mælti fyrir á sínum síðasta borgarstjórnarfundi haustið 2007 samþykkt í dag.
Það var synd að liggja heima í flensu á meðan áætlunin var rædd á fundi borgarstjórnar, enda hefði verið gaman að fagna þessum áfanga í átt að vistvænni samgönguháttum Reykvíkinga. Áætlanir sem þessi lýsa nefnilega pólítískum áherslum – og frá og með deginum í dag ríkir þverpólítísk sátt um að gera hjólreiðum hærra undir höfði sem samgöngumáta. Þá á aðeins eftir að framkvæma það sem þarf til að hjólreiðar verði raunverulegur valkostur fyrir borgarbúa.
Það er nefnilega ekki nóg að leggja hjólreiðastíga. Þeir þurfa að vera hugsaðir í þaula og í takt við þarfir hjólreiðafólks, mynda net sem virkar milli helstu áfangastaða og vera þannig úr garði gerðir að öryggi fólks sé tryggt. Ekki bara fullorðins fólks sem hjólar allra sinna ferða, heldur líka þeirra sem eru að byrja að hjóla, líka barna og líka fjölskyldna. Hjólreiðar eiga að geta verið samgöngumáti fjölskyldna og fólks á öllum aldri.
Til viðbótar við hjólreiðastígana, þarf að skipuleggja borgina með þeim hætti að vegalengdir verði viðráðanlegri – með þéttingu byggðar og sjálfbærum hverfum. Nauðsynlegt er að fólk geti sótt verslun og þjónustu án þess að þurfa á einkabíl að halda – börn eiga að geta komist gangandi og/eða hjólandi í skóla og frístundir, aldraðir eiga að komast ferða sinna og svona mætti lengi telja.
Án þess að ég fari hér út í nákvæmar útfærslur á hjólreiðastígum eða skipulagi einstakra hverfa, þá er þetta eitthvað sem borgaryfirvöld verða að hafa í huga við alla ákvarðanatöku. Fyrsta skrefið hefur verið stigið – og næstu þarf að stíga fljótt og örugglega.
Færslur (RSS)
Heyr heyr – þessu ber að fagna! Ég bý í hverfi þar sem einkabíllinn hefur tekið yfir og umferðarmannvirkji drekkja litlum sem engum grænum svæðum – hjól eru ekki bara tómstundatæki þau eru samgöngutæki!