Ég var að koma af góðum fundi Vinstri grænna í Reykjavík um Ríkisútvarpið ohf. Fundurinn var fjölmennur og mikill hiti í fólki, enda er niðurskurður hjá stofnuninni umdeilanlegur af mörgum ástæðum.

Vinstri græn stýra menntamálaráðuneytinu og Vinstri græn gegna stjórnarformennsku í RÚV. Undir venjulegum kringumstæðum ættu því áherslur og aðferðafræði við hagræðingu stofnunarinnar að vera í samræmi við stefnu Vinstri grænna. Þannig hefði átt að fara í launajöfnun innan stofnunarinnar áður en til uppsagna kom á starfsfólki, það hefði átt að gæta kynja- og landsbyggðarsjónarmiða, leggja hefði átt áherslu á að vernda innlenda framleiðslu og dagskrárgerð og þannig standa vörð um menningarlegt hlutverk þessarar sameignar okkar Íslendinga.

Þannig var það því miður ekki. Ekki vegna þess að menntamálaráðherra eða stjórnarformaður RÚV hafi á örskotsstundu skipt um skoðun eða sannfæringu, heldur vegna þess að valdakerfið byggir enn á hugmyndafræði fyrri ríkisstjórna.

Uppbygging stjórnkerfisins er afleiðing markaðs- og einkavæðingarhyggju Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn gerði Ríkisútvarp allra landsmanna að opinberu hlutafélagi sem varð til þess að pólítísk ábyrgð á stefnu og áherslum stofnunarinnar veiktist til muna á sama tíma og vald útvarpsstjóra jókst. Útvarpsstjórinn var ráðinn samkvæmt áherslum þess tíma og virðist ekki hafa neinn hug á að taka mið af breyttum áherslum í samfélaginu.

Sumsé. Þó þjóðin hafi kosið sér nýja ríkisstjórn og aðra hugmyndafræði, þá er það ekki nóg. Nýja ríkisstjórnin á mikið verk fyrir höndum við að taka til í stjórnkerfinu, auka gagnsæi og setja pólítíska ábyrgð þar sem hún á heima.  Eitt þessara verkefna er að fara í gagngera endurskoðun á lögum um RÚV ohf og á þjónustusamningnum sem nú er í gildi um stofnunina. Ég hef fulla trú á núverandi ríkisstjórnin í þessum efnum, þó auðvitað sé freistandi að fyllast óþolinmæði. Ný lög, skýr valdmörk og lýðræðislegri stjórnunarhættir eru það sem koma skal – og ekki bara hjá RÚV.

Eitt svar við “Hugleiðing um RÚV ohf”
  1. Flott dæmi um hvar þarf að breyta kerfinu!

  2.