Posted on apríl 26th, 2006 by Sóley in Blogg
- Kynbundnu launamisrétti verði útrýmt
- Launaleynd hjá borginni verði afnumin
- Markvisst unnið gegn kynbundnu ofbeldi
- Klámi útrýmt úr opinberu rými og súlustaðir bannaðir
- Jafnréttisfræðsla fyrir allt starfsfólk borgarinnar, með áherslu á stjórnendur og uppeldisstarfsfólk
- Stuðningur við lítil og meðalstór fyrirtæki, með áherslu á atvinnustarfsemi kvenna
- Kynjamiðuð fjárhagsáætlanagerð í Reykjavíkurborg
- Aukinn stuðningur og samstarf við frjáls félagasamtök um kynjajafnrétti
- Reykjavík hvetji allt starfsfólk til að axla ábyrgð á fjölskyldulífi
- Íþróttaiðkun stelpna hafi sama vægi og stráka
- Stuðningur borgarinnar við félagasamtök verði háður því að jafnréttis- og forvarnaráætlunum borgarinnar sé framfylgt
- Við skipan í nefndir og ráð borgarinnar skuli ávallt gæta jafnræðis milli kynja
- Reykjavík verði leiðandi afl í kvenfrelsismálum

Þessi færsla birtist fyrst Miðvikudagur, apríl 26th, 2006 klukkan 12:20 og fellur undir flokkinn Blogg. Þú getur fylgst með svôrum við þessari færslu í gegnum RSS 2.0 línuna. Lokað er fyrir athugasemdir og hljóðmyndanir.
Ég trúi ekki öðru en að Vinstri Græn nái meirihluta með þetta á stefnuskránni.
Steinn og Sindri Snær- svörin ykkar eru í kommentakerfinu hér að neðan.
Kv
Ég trúi ekki öðru en að Vinstri Græn nái meirihluta með þetta á stefnuskránni.
Steinn og Sindri Snær- svörin ykkar eru í kommentakerfinu hér að neðan.
Kv
Sammála síðasta ræðumanni, ég byrjaði að skrifa langt svar til þín Kristín við færsluna hér að neðan, en ég gefst upp á því, það var orðið of langt. Kjarni máls míns er hinsvegar þessi; hér að ofan eru til skiptis áætlanir og viljayfirlýsingar, ég kýs fólk með skýr plön, ekki fólk sem vill vel en veit ekki í hvorn fótinn það á að stíga.
Ég er ekki að saka neinn um slíkan hugsunarhátt, en það væri mjög sannfærandi að heyra hvernig á t.d. að útrýma kynjabundnu launamisrétti — og hversu langt það á að ná? Varla til einkafyrirtækja? Á ekki að útrýma launamisrétti í heild sinni, t.d. afhverju Gulli frændi Jóa fær hærri laun en Siggi, bara því hann er frændi Jóa, osfrv. Og svo hvað með menntun, á fólk með gráðu rétt á hærri launum en ómenntaðir? Á fólk ekki einfaldlega að fá greitt í hlutfalli við verðleika, algjörlega óháð kyni eða neinu öðru?
Æ, já, ég gleymdi víst að setja rúsínuna í pylsuendann hjá mér, að lausnin á þessu væri náttúrulega að afnema launaleynd allstaðar, ekki satt?
ekki fá þeir mitt atkvæði með þessi stefnumál.
Hækjur eru ekki fyrir heilbrigt fólk og enginn vill nota hækjur að óþörfu
Mikael- ég skil ekki alveg hvað þú ert að gagnrýna í efsta svarinu þínu. En ég ímynda mér að þú sért að tala um kynjahvóta eða forgjöf fyrir konur þegar kemur að atvinnu. Hér að ofan er þó ekki minnst einu orði á kynjakvóta í kvenfrelsis stefnu VG. Aftur á móti hafa rannsóknir sýnt að það þarf sértækar aðgerðir til þess að konur komist áfram á atvinnumarkaðnum. Sértækar aðgerðir eru tímabundnar og eiga að skila sem mestum árangri á sem stystum tíma. Dæmi um sértækar aðgerðir eru samþættingar kynjasjónarmiða og kynjakvótar. Þessar aðgerðir eru kannski ekki vænlegastar, en þær eru árangursríkastar. Þrátt fyrir niðurstöðurnar sem þú vitnar í hér að ofan, um að konur séu betri stjórnendur og að konur séu að skila sér í meira mæli út úr háskóla. Menntun þeirra og hæfni er ekki metin til jafns við menntun og hæfni karlmanna. Ef við stillum af fyrir allar aðrar mögulegar breytur þá sjáum við áhrif kynjabreytunnar.
Konur hafa verið í meirihluta af stúdentum Háskólans í of langan tíma til þess að þau rök dugi um jafnrétti í framtíðinni. Því miður!
Steinn- ég er alveg sammála þér um að pólitískar stefnu yfirlýsingar eru ekki nóg, en þær eru hluti af pólitíkinni. Ég er alveg viss um að Sóley geti útskýrt fyrir þér hvernig VG ætlar að fara að því að framfylgja þessari stefnu sinni. Sjálf sé ég ekki að þessar yfirlýsingar ættu að reynast nokkrum manni erfiðar í eftirfylgd. Þetta kostar ekki mikla fjármuni, heldur er þetta spurning um framkvæmdarvilja og skilning á mikilvægi framkvæmdanna!
Ég tek undir með ykkur báðum að launaleyndin er bara slæm!
Tinna- Það sem grefur mest undan jafnréttisbaráttunni og frelsi kvenna eru konur sem taka ekki þátt í baráttunni sjálfar. Það er ekki minnst einu orði á hækjur í þessari stefnuyfirlýsingu og Vinstri græn vilja ekki að fólk noti hækjur að óþörfu.
Kær kveðja,
Ég spurði pabba hvort við ættum ekki að kjósa vinstri græna í vor.
Nú bý ég á götunni, hvað ætlið þið að gera fyrir fólk sem á hvergi heima??
Hvar ertu alin upp blessað barn?
Álfadrottingin
Hver er Álfadrottningin?
Kristín Alma- VG býður þér að flytja á Nönnugötuna til mín því þú ert svo ógeðslega fyndin. Ég skal elda handa þér, þvo af þér og vera þér félagsskapur.
Frábært, Nafna mín.
Dáldið leiðinlegt að eiga hvergi heima.
Vertu í bandi
848-5313
Ég verð nú að heyra endann á þessari sögu, verður bloggað um þessa sambúð?
Hver er annars Álfadrottningin?
Mér finnst þegar kona er í framboði að hún verði að vera dugleg(ri) að rita gullmola og fróðleik á síðuna.
Þó ekki væri nema texta við téð lag. Gott lag nóta bene.
Hi, this is a comment.
To delete a comment, just log in and view the post's comments. There you will have the option to edit or delete them.